Dægurlagaútvarpið

Þórdís Kolbrún og Emmý

14.03.2007 23:28:43 / disakolla

Yfirlit!

Það er indælt að sofa, ég er búin að sofa svo mikið síðan á sunnudaginn að það fer að verða e-ð skrýtið. ( það er ý í skrýtið, má gera bæði ). Ég er reyndar líka búin að borða gífurlega mikið og það ekki af gulrótum og fiski! En sukkið endaði í dag, með afmælisveislu hjá Kristjáni Helga 4 ára litla frænda í Kópavogi. Annars er afmælisdagur ömu Dísu í dag, hún hefði orðið 92 ára. Ég sakna hennar.

Ég fékk kökuna hennar mömmu eftir keppnina og fékk nokkra bita af hamborgunum hans Stebba úr fjölskyldutilboðinu.......!?! ;0) Mér fannst ekki gaman á balli, ég var svo þreytt og edrú. Það voru flest allir rosalega fullir og klístraðir e-ð.

Ég var mjög ánægð með Sportstúlkutitilinn minn =) Mér þótti mjög vænt um það, bæði að fólk hafi kosið mig á tískusýningunni sem og Hugi, Elsa og co. hafi valið mig. Hraustlegur og æðislegur titill. Ég man þegar ég var yngri þá var þetta uppáhaldstitilinn minn í svona keppni.

Annars var kjólalabbið með laginu hennar mömmu toppurinn á kvöldinu. Ég plataði hana og sagðist ætla nota Yellow með Coldplay en var með Morning Has Broken með Cat Stevens sem er uppáhaldslagið hennar mömmu. Mér leið mjög vel svona sæt og uppstríluð og brosti til mömmu við lagið í fínum kjól. Rosa dúlló.

Annars er skemmtileg helgi framundan! Á föstudaginn ætla ég á Austfirðingaball í Reykjavík með Birtunni minni (skiptinemavinkonunni yndislegu) og gista með henni í bænum. Og á laugardaginn opnar kosningaskrifstofan og um kvöldið er þrítugsafmæli Siggu frænku! Ég hlakka svoo til að djamma með henni. Það er klárlega kominn tími til! :haha: Hlægja úr okkur allt vit og fara svo niðrí bæ og dansa! Oh ég get ekki beðið.

Ég fór í bíó með Stebba og Elísu á mánudaginn, fórum líka út að borða. Það er svo gaman að vera með vinum sínum eftir svona stress vikur og í gær tókum við gamli "saumaklúbburinn" vídjó og keyptum nammi =P Horfðum svo á Freestyle ´98 þar sem við tókum okkur vel út túperaðar í rot og áttum algjörlega sviðið ;0) Enda pínkulitlir Íslandsmeistarar málaðar eins og gleðikonur =P

En nú tekur sálfræðiritgerð við næstu daga og vikur og lærdómur yfirleitt. - Ef ég ætla að útskrifast í vor! Sem btw. verður ljúft...

Góða nótt og Guð geymi ykkur =*

 


» 8 hafa sagt sína skoðun

09.03.2007 00:16:50 / disakolla

Ungfrú Vesturland

Generalprufa fyrir keppnina er á morgun - Ég veit ekki hvort ég sé stressuð/spennt/kvíðin eða hvað.. Spila mig allavega voða rólega.. En hvað er að marka það.

Bubbi var leynigesturinn hjá okkur á árshátíðinni - Vitanlega urðu allir glaðir með það. Ég fékk tár í augun þegar hann söng aukalagið sem var Rómeó og Júlía.

Netkosningin byrjaði í fyrradag, ég gleymdi að auglýsa það. Endilegað kjósið mitt kæra fólk.

http://ungfruisland.is/netkosning.php?idprel=31

Símakosningin einnig komin.. Ég er á mynd í þetta skiptið. Númerið er 902 0011

Ég ætlaði að reyna að ná góðum svefni fyrir morgundaginn. Það verður mikið að gera sem og á laugardaginn.. Ég er sybbin og þarf að fara læra vel og mikið strax eftir keppni.

Takk fyrir mig - Sjáumst&heyrumst

Kossar&knús


» 10 hafa sagt sína skoðun

12.02.2007 00:01:15 / emmy

Söknuður

Dagurinn er of fljótur að líða, það eru of fáir klukkutímar í sólahringnum, og einhvernveginn hef ég alltaf meira að gera en ég kemst yfir og mig langar að gera ennþá meira en ég er að gera núna, hvernig endar þetta ? Allaveganna lofa ég að koma með færslur héðan í frá þar sem að líf mitt hefur róast aðeins. En svona til að lyfta ykkur upp í skammdeginu ætla ég að koma með minningar frá kanarí.

Stebbi og ég, fersk fersk fersk

Við fengum okkur nokkur svona í flugvélinni, sammt bara nokkur !

Þessi hérna átti vafalaust mjööög góð móment í þessari ferð. Það er fátt skemmtilegra en að borða góðann mat og drekka gott vín með Feddu þar sem að hún kann að meta það, o gsvo  verður hún líka viðbjóðslega fyndin eftir nokkur rauðvínsglös, eða flöskur.

Þó við séum sveittar, þá elska ég þessa mynd. Lífið var ljúft

Gúrme, gúrme, gúrme... Við kunnum matseðilinn þarna utan að...

Þessi bátsferð var líklegast með því skemmtilegra sem ég hef gert um ævina, og aldrei hef ég innbyrgt jafn mikið af Sex on the beach...

Að djamma léttklæddur er örugglega skemmtilegast í heimi, veit að það hljómar hóru lega, en mér er alveg sama

Bestu áramótin hingað til !!!!!

Ég var eina manneskjan sem fór ekki í sleik við Stebba í þessari ferð.

Hversu mellulegt er að dansa í búri með bera leggi ? Mjög mellulegt, en á Kanarí má allt, og þar þykja svona hlutir ekki mellulegir....

En ég nenni ekki að hafa þessa færslu lengri þar sem að það tekur sultu langan tíma að gera þetta.

Héðan í frá koma færslur vikulega, ef ekki oftar.

-Emmý


» 10 hafa sagt sína skoðun

01.02.2007 14:24:17 / disakolla

Árshátíð 2007

Við Elísa og Harpa óskum eftir ábendingum um atriði á árshátíðinni 8. mars nk. Hvort sem það eru þekktir einstaklingar, krakkar úr skólanum eða annað.

Ábendingar og uppástungur sendist til: isakolla50@hotmail.com">disakolla50@hotmail.com

Thank you!


» 0 hafa sagt sína skoðun

26.01.2007 14:38:31 / disakolla

Árshátíðin ´07

Ég held það sé kominn tími á litla færlsu á þessu annars hálfglataða bloggi okkar systra. Emmý hefur ekki tíma til þess að setja í þvottavél vegna anna í leikriti skólans og ég hef bara lítið merkilegt að segja held ég.

Ég var að skoða gamlar færslur síðan ég var úti - Ég var ansi málglöð þar og þá var bloggið herra Sáli! Ég sakna samt ennþá Austurríkis mikið, að hafa allan tímann í heiminum til þess að spá og spögulera í manni sjálfum, fólkinu manns og lífinu yfir höfuð - Fyndið að spá í því hvað maður var oft að hugsa.

En í fréttum er það helst að við Elísa og Harpa Lind ætlum að sjá um árshátíðina í ár. Það kom upp sá möguleiki að breyta vanalegu sniði og rúnta e-ð suður á árshátíð. Selfoss var hugmyndin - Ég var lítið sem ekkert spennt fyrir henni fyrst en eftir að hafa lesið tilboð sem Ragnheiður sendi okkur og svona er þetta mjög athyglisvert og örugglega ótrúlega gaman og skemmtileg tilbreyting.

Þetta yrði auðvitað meiri peningur en málið er að það er ekki svo mikið mál að forgangsraða þessum þúsundköllum. Dæmi: Klipping, kjóll, ljós, neglur, förðun og ball hér... Gæti orðið kjóll, ljósatímar og vinkonan sér um förðunina og apoteksgervineglur koma sterkar inn! Ferð á Selfoss með hótelherbergi (fyrir 18+) morgunmatur og alles. En þetta er allt í vinnslu og við finnum e-ð æðislegt.

Ég fór til Siggu frænku í Grafarvoginn í gær og það var yndislegt. Ég hafði saknað hennar mikið síðustu daga og vikur og það mætti halda að hún ætti heima á Egilsstöðum! Nú þegar ég hef séð hversu auðvelt það var að keyra í 25 mínútur er planið að rækta þessar heimsóknir þar sem þær eru eitt það besta sem ég veit.

Ég færði 7 duglega krakka úr sundhópnum mínum og fékk 7 yngri duglega krakka í staðinn. Mér fannst skrýtið að þurfa láta þau fara og langaði það voða lítið. En það er auðvitað æðislegt að kynnast nýjum krúttum og breyta til. Mér finnst leiðinlegt að þurfa líklegast að hætta í vor að þjálfa. Þótt ég efist um að ég muni flytja beint í bæinn eins og ég hafði hugsað mér þótt við mamma kaupum íbúð. Það væri fínt að leigja hana fyrsta árið og fá smá pening. Svo er auðvitað svo ljúft að búa heima á besta hótel mömmu og pabba kokk.

Endilega kjósið í skoðanakönnuninni! 


» 8 hafa sagt sína skoðun

16.01.2007 16:02:19 / disakolla

Død?

Hver er framtíð þessa bloggs?

Annars verður afmælið hjá Unu Lovísu og Elísu Guðrúnu á laugardaginn! Kanaríreunion og Detroit í spilun...Újiii! ;)


» 6 hafa sagt sína skoðun

09.01.2007 01:02:08 / emmy

MYNDIR, MYNDIR, MYNDIR, MYNDIR....

    BÚIN AÐ SETJA INN MYNDIR FRÁ KANARÍ, LÁTIÐ MIG VITA EF ÞAÐ VERÐUR AÐ FJARLÆGJA EITTHVAÐ. ÞIÐ GETIÐ NÁLGAST MYNDIRNAR

HÉR

-Emmý

» 10 hafa sagt sína skoðun

25.12.2006 17:59:41 / disakolla

Jólin

Jólin heima á Íslandi voru ljúfari sem aldrei fyrr. Ég hugsaði samt svolítið út og fjölskyldan mín hringdi líka í gær og óskaði mér og okkur gleðilegra jóla. Ég hef ekkert talað við þau í síma síðan ég kom heim, einungis email og sms svo það var skrýtið að heyra í þeim og tala þýsku. Reyndar mjög erfitt að tala hana í símann indælt þó að heyra í Sabinu og Önnu systur.

Við fórum í kirkju eins og alltaf en mér hefur aldrei þótt jafn gott að fara í kirkju eins og í gær, ég fór ekki í fyrra vegna þess að þau eru ekki trúuð. Reyndar fórum við í miðnæturmessu en það var samt ekki eins og þar stóð ég í kaldri risastórri kirkju, ekki jafn hátíðlegt og hér heima. Ég hugsaði mikið til og bað fyrir Hildi, konu Ásþórs frænda sem og stráksins hennar og Ásþóri. Svo kom sálmur sem var svo fallegur að ég grét bara. En eftir messuna voru komin jól, og maturinn heima var yndislegur eins og alltaf. Pabbi eldar besta mat heimsins og kakan hennar mömmu er ólýsanleg :-)

Við fórum svo aðeins til Dúnu frænku í ömmu Dísu hús og heilsuðum upp á lýðinn. Mjög ljúft, Einar Robert massaði gargaði hærra en Justin Timberlake á góðri stund, súkkulaðið hefur e-ð farið hressilega vel í 2. ára guttann. Aníta fósturdóttir Sveinbjarnar er fegurri en postulínsdúkka og barnið sem kemur í janúar verður það líka. Góðir tímar.

Kanarí á morgun. Juminn. Það verður ljúft. Og skemmtilegt. Mmmm! Ég hlakka til.

Gleðileg jól fagra fólk =*


» 6 hafa sagt sína skoðun

22.12.2006 12:34:39 / emmy

Sjúklega næs, fjórir dagar í kanarí !

Vil byrja á að segja ykkur frá því sem ég lenti í gær.

Eins og ég kanski minntist á í seinustu færslu, voru Mamma og co (co= makki, dísa, demi og krissý)  að koma. Mér var sagt að mæta á flugvöllinn stundvíslega klukkan þrjú til þess að sækja þau, eins heimsk og ég get verið tékkaði ég ekki á textavarpið áður en ég fór hvort að það væri seinkun.

Eftir Að hafa keyrt í gegnum skin, skúrir og bókstaflegann blindbyl kom ég loksins til keflavíkur klukkabn 15:10 stundvíslega. Það sem blasir við mér á keflavíkurflugvelli er mikil ringlureiði, fólk að labba um gólfin, talandi í síma og allir mjög órólegir.

Ég leit uppá skjaínn til að athuga hvort vélin væri lent, en nei, á skjánum stóð : væntanleg klukkan 16:58. klukkan var tíu mín yfir þrjú á þessum tímapunkti.
Ég eytti 1060 krónunum sem ég var með á mér í eitt stykki cosmopolitan sem ég las svona þrisvar sinnum.

Klukkan 16:58 var vélin ekki lent. Þá fer ég á upplýsingarborðið og spyr konuna (sem bæ ðe vei hét Pamela) hvort vélin væri ekki væntanleg. En hún tilkynnti mér það að engar vélar hefðu lent síðan klukkan tvö í dag og líklegast þyrfti vélin að lenda á Egilstöðum.
Ég missti andlitið, og spurði hana hvort hún væri að djóka. Hun neitaði því og tilkynnit mér það líka að veðrið væri svo slæmt að hún ráðleggði fólki ekki að yfirgefa flugvöllin að svo stöddu. Þá var Emúelu allri lokið, hún hringdi í Stebba sinn sem Skildi þjáningar mínar og sagði mér allt af létt. Einnig er gaman að taka það fram að þessi yndislegi drengur Dúxaði á stúdentsprófunum sínum. ég gæti ekki verið stoltari þó að barnið mitt myndi dúxa.
En svo loksins kom vélin. Eftir MIKLA BIÐ. mamma kom út, nánast með æluna uppí háls, enda er hún flughrædd manneskja með einsdæmum.

En svona fór semsagt Keflavíkurferðin mín, en við komumst þó á leiðarenda, og það óskemmd, nema ég var smá skemmd í sálinni eftir að hafa eytt svona miklum tíma í eymsemd.

En ÞAÐ ERU 4 DAGAR Í KANARÍ........ og vegna þess hversu sjúklega æðislega spennt ég er, þá ætla ég aðkoma með myndir uppá stemmarann:

 Þetta er á ensku ströndinni, pirrandi. Vona að ég verði jafn krúttleg og hún á ströndinni.

 Spurning um að skella sér í svona.

 - það er ekki bannað að fá sér svona á Kanarí.

-Ég kveð ykkur úr málningarþjónustunni, með bros á vör og sól í hjarta.


 


» 5 hafa sagt sína skoðun

19.12.2006 10:37:11 / emmy

Það er ein vika...

Í tilefni þess að ég er að fara til Kanarí eftir 8 daga tók ég þá ákvörðun að blogga, líka útaf því að fólk var svo duglegt að lesa færsluna að neðan..

En allaveganna. 7 dagar ? Hvaða djók er það. Ég man þegar að einhver manneskja hét "útskriftarferð eftir 196 daga" á Msn, og mér fannst eins og þetta hafi skeð í fyrradag. En eftir viku mun ég vera á leiðinni útá flugvöll.......

Er einhver hérna inni að átta sig á því að það er að koma 2007........... Ég er allaveganna ekki að átta mig á því, meira að segja í skólanum, þegar að ég er að glósa eins og mormóni (þó ekki sá sem Erla Guðrún runkaði) þá skrifa ég stundum, alveg óvart 2005 . Og árið 2005 var ég bara átján ára, núna er ég að verða 20. 20!!!!!!!!!!!!!!!!!!! þá fara einhverjar litlar pussur að biðja mig um að fá skilríkin mín í láni, og ég get farið í bæinn, svona nokkurnveginn verið bara örugg með mín eigin skilríki.

Jesús, þetta eru miklar krísur sem ég er í, og ég er ekki að fatta hvernig tíminn getur liðið svona hratt, ég var að byrja í skólanum fyrir viku, í mesta lagi.

Almáttugur, núna er ég hætt að krísast..... Vá, klukan er alltof lítið til að vera að pæla í svona hlutum, ég er búin að fá minni svefn undanfarna daga, heldur en nunna í leit að ástinni.

Talandi um Nunnur.

Í prófunum, var svefngalsinn allsráðandi, og þá meina ég það. til dæmis var ég að lesa undir menningarfræði prófið mitt og ég var að lesa um Luther og fyrrv. konuna hans, Katrínu. En hún hafði áður verið nunna, mér fannst hún svo mikil drusla að hafa hætt að vera nunna fyrir hann Luther, en var hann ekki munkur ?

Fólk var líka lauslátt í denn.

Daginn fyrir alþjóðafræði prófið átti ég líka skemmtilegt samtal við hana Fjólu Dögg bekkjarsystur mínar, en í því samtali var farið yfir allar hugsanlegar hefniaðgerðir ef að Eiríkur skyldi voga sér að koma með eitthvað lufsupróf, sem hann svo gerði en nóg um það.

Ég ætla að kveðja ykkur úr Málningarþjónustunni með nokkrum unaðslegum myndum frá kanarý. ÞVÍ ÉG VERÐ ÞAR EFTIR VIKU.

 - Þetta hatar hún amma Tan ekki..

 - Ætli það verði ekki kíkt á einn svona.

 - Það verður ekki pirrandi að liggja þarna......

- Emilía


» 13 hafa sagt sína skoðun

13.12.2006 15:45:17 / emmy

Lesið... og hugsið

Þetta fékk mig til að hugsa, vona að það fái ykkur til þess líka..

 Við erum ekki ódauðleg..
Ég mun aldrei gleyma því, hversu svalur mér fannst þú vera, þegar þú þeyttist eftir Reykjanesbrautinni á 160.kílómetra hraða á klst, á nýja bílnum þínum, sem þú fékkst daginn áður, ásamt ökuskírteininu. Það var eins og brautin hefði verið sérsniðin fyrir þig. Það breytti engu þótt myrkrið væri skollið á og brautin rennisleip, eftir rigningu dagsins. Þú varst Sjúmakker Íslands og við fylgdumst með þér af aðdáun og áttum ekki orð yfir það, hversu fimur okkur fannst þú vera á bak við stýrið. Ég sem er vanur að nota öryggisbelti, lét ég bara hanga niður með sætinu. Mér fannst algjör óþarfi að spenna það á mig, því mér fannst ég svo öruggur með þér í bíl.
Það átti við um okkur öll, sem vorum með þér í bílnum. Ljósastaurarnir þeyttumst framhjá og manni fannst eins og það væri bara einn langur ljósastaur á Reykjanesbrautinni, því þú ókst svo hratt. Ég man að stelpurnar skríktu af gleði, því þeim fannst þú svo svalur og ég fann það á mér, að þær ætluðu allar að "negla" þig í lok ferðar. Ég horfði á þig öfundsjúkur, því þú bjóst við svo mikla kvennhylli. Djöfull get ég ekki beðið eftir því að fá bílprófið, því þá skulu þær allar verða mínar.

Ég mun aldrei gleyma því þegar ég sá þig í dauðateygjunum, eftir að þú þeyttist út úr bílnum, eftir að hafa keyrt á bílinn, sem kom úr gagnstæðri átt. Eitt lítið augnablik misstir þú stjórn á bílnum og nýji bíllinn ónýtur og Reykjanesbrautin blóði drifin. Ég mun heldur aldrei gleyma stelpunni, sem sat frammí með þér. Fallega brúnhærða stelpan, sem skríkti og hló svo dátt, mun aldrei hlægja aftur. Þarna lá hún út um allt í bílnum. Hún var eins og kramin fluga, sem var búið að slíta af vængi og fætur. Ég mun aldrei gleyma stelpunum, sem sátu aftur í með mér. Þær lifðu af, en munu aldrei lifa aftur eðlilegu lífi, nema eðlilegt líf sé að liggja á sjúkrastofnun, það sem eftir er og vera grænmetishausar. Ég mun aldrei gleyma gömlu hjónunum, sem voru í bílnum, sem þú keyrðir á. Þau hefðu auðveldlega geta átt 10 - 15 góð ár í viðbót. Ég mun aldrei gleyma því, hvernig mér leið þarna aftur í. Ég gat mig hvergi hreyft og get það ekki ennþá, því ég er fastur í hjólastól og er algjörlega háður öðrum, því ég get hvorki fætt mig né klætt. Nú mun ég aldrei fá bílprófið, sem ég þráði svo heitt.... né kvennhyllina.

Ef þú heldur að þetta sé allt, þá er ég bara rétt að byrja. Hvað með móður þína og föður, sem elskuðu þig svo heitt? Hvað með systkini þín, sem dáðu þig og horfðu upp til þín? Hvað með ömmu þína og afa, sem voru svo stolt af barnabarninu sínu? Hvað með alla vini þína, sem gátu varla verið án þín?
Ertu tilbúinn að steypa öllu þessu fólki í sorg, sem er jafnvel óyfirstíganleg? Hvað með ættingja allra hinna, sem þú stefndir í hættu og myrtir? Hvernig heldur þú að það sé að vera viðstaddur jarðaför síns eigins barns? Hvernig heldur þú að það sé að koma í heimsókn á sjúkrahúsið, þar sem barnið þitt liggur, með næringu í æð og í dái, og á aldrei möguleika aftur á eðlilegu lífi? Hvernig heldur þú að það sé að þurfa að fæða, klæða og skeina barninu sínu, langt fram á fullorðinsaldur?

Hefði ekki bara verið betra að keyra á löglegum hraða eða var "kúlið" alveg að drepa þig? Það gerði það reyndar á endanum.

Höf. Garðar Örn Hinriksson


» 10 hafa sagt sína skoðun

09.12.2006 20:18:18 / disakolla

Missing you..

Ég er nördi að hlusta á lag á þýsku..."Was wir alleine nicht schaffen" - sem mér finnst samt svo fallegt og það minnir mig endalaust mikið á milli himins og jarðar! - Aðallega Vínarborgina mína fögru. Ég get ekki beðið eftir því að fara út í heimsókn og knúsa Sabinu og Önnu systur í klessu! Hún grét svo mikið þegar við kvöddumst og ég sakna þeirra beggja stundum hrikalega. ...Mig langar að búa einhvern tímann aftur í Vínarborg - En með einhverjum íslenskum sem mér þykir vænt um. Skrýtið að hugsa til þess að ef ég hefði ekki farið þekkti ég ekki þetta yndislega fólk. Ég væri að missa mikið þau eru svo yndisleg.

Allavega... Er ég búin með 4 próf og aðeins 2 eftir. Þau hafa gengið misvel en einkunnir koma bara í ljós síðar. Svo erum við að fara út eftir 17 daga! Er það e-ð grill? Ég hef lítið sem ekkert spáð í þessu en þetta verða svoo skemmtilegir 10 dagar! Hvað það verður mikið hlegið og notið lífsins =0)

Mig langaði svo í bíó í kvöld... Eða bruna í bæinn og heimsækja Emmý mús en veðrið leyfir það víst ekki. Annars hef ég ekki hitt Lindu vinnualka lengi svo við bætum úr því í kvöld ;-)

Fór í skemmtilega og fræðandi ferð á föstudaginn, mjög gaman. Eldri maður þar spurði hvort það væri ekki Nylon æfing í kvöld, (hann var að gantast), honum þótti ég svo lík Klöru... Hvað er það? Þetta hefur svo oft verið sagt við mig en mér finnst við ekkert líkar... Dökkt hár og stundum gleraugu!?

P.S. Ný skoðanakönnun


» 6 hafa sagt sína skoðun

08.12.2006 00:08:55 / disakolla

3 búin, 3 eftir

Bloggið er ekki dáið...ennþá!

Fimmtudagurinn í næstu viku: Prófin klárast! - Kannski Verslóball..

Föstudagurinn: Jólahlaðborð hjá Olís.

Laugardagurinn: Una hin fagra á afmæli - Ball?

Tæpar 3 vikur í útskriftarferð :D Búið að gera díl við einhverja svo þeir fái "afslátt" og fleiri koma með =0) Hlakka svo til að fara til útlanda með bestu vinum mínum.

Ég sakna Austurríkisfjölskyldunnar minnar gífurlega!♥  ...Og veit ekki hvað ég á að fara í þegar að háskóla kemur...Í haust?

Stebbi gebbi og Svava veika grey eru búin að vera sálufélagar mínir í dag - Þakka þeim geðheilsu mína og hlátrasköll.


» 5 hafa sagt sína skoðun

23.11.2006 10:38:36 / disakolla

Óveður&Kanarí

Planið er að henda inn myndum hérna sem fyrst en ég hef ætlað að blogga í nokkra daga en það hefur e-ð farið úrskeiðis. Ég fór á Mýrina á þri. og fannst hún góð. Kúl íslensk mynd og ég meirað segja að grípa í mömmu og kreista 2var sinnum í myndinni. Fór svo á bókasafnið og sótti Grafarþögn, var aldrei búin að lesa hana. Páp og Gylfi Veigar fóru á James Bond en mig langaði lúmskt mikið að sjá hana og ætla mér að gera það sem fyrst. En að öðru þá lentum við Aldís, Fríða og Stína frænka í lífsháska í óveðrinu um helgina þegar við vorum á leið heim úr Rvk. Við vorum í 3 tíma á leiðinni og ég var svo hrædd. Eltum ljósin á bílnum fyrir framan okkur, annars hefðum við þurft að gista í bænum og við vorum stundum bara á vitlausum vegarhelming og æj oj. Drifum alla leið að lokum en festum okkur svo fyrir utan hjá Hauk og Aldísi. (Klapp fyrir því) Björgunaesveitin skutlaði okkur svo heim undir morgun. Mér leið eins og það væri árið 1800. Svo hitaði Haukur sér hafragraut með nýmjólk sem toppaði það alveg. Við keyrðum fram hjá Mörkinni þegar við höfðum skutlað Stínu heim og Mörkin var eins og snjóhús í norður Noregi.

Á sunnudeginum fórum við svo upp í fjall og festum okkur og jeppinn dró okkur á snjóþotu sem ég skoppaði svo af og beint á rassinn. Samt mikið stuð! Fengum svo heitt kakó og kökur heima hjá skötuhjúunum í Jörundarholtinu.

Nýfædda dótturin hjá Hödda bró og Helgu heitir Hrafnhildur Ísabella sem passar svo vel við dökka fallega lubbann í H fjölskyldunni : )

Annars eru prófin bara að detta á og allir hressir. En áður en þau byrja er Herra Ísland í kvöld (fúddívú), afmæli hjá Stebba á lau og jólaball.

Útskriftarferð og sulturnar hættar við. Það verður samt sem áður sjeggað og einkahúmorinn mun ná hámarki með Emanúelu, Stebba múltí, Svövu kammó, Lindu rapp, Elísu fegó, Unu beibí, Feddu dúllu, Veru djamm&félögum. Ég hlakka svo til :haha:


» 2 hafa sagt sína skoðun

17.11.2006 17:41:40 / emmy

Ein hress

Ég verð að segja ykkur frá vandræðalegasta mómenti lifs míns.

Þannig er mál með vexti að ég var í Ræktinni að hlaupa eins og skessa (útskriftarferð um jólin, og það er skroppið í ræktina á hverjum degi , þema þessa átaks er " 20kg. um áramótin") Nema það að ég var að horfa á Extreme makeover home edition, eða hvað það heitir, með heyrnatól í eyrunum.
Ég grenja oftast yfir þessum þáttum heima hjá mér (sama á við um Sigríði) En þarna var ég stödd meðal að minnsta kosti 40 próteinbombum þannig að ég hélt eða ég vonaðio að ég myndi nú örugglega ná að hemja væmnina.. En allt kom fyrir ekki. Húsið var reddí, hjónunum var sýnt húsið, þau áttu sjö börn og allir voru ánægðir og felldu gleðitár, nema hún Emilía á hlaupabrettinu, hún felldi tár og átti bágt með að halda inní sér alvöru tárunum, en oftast fylgja ekkasog með þeim. Ég skammaðist mín svo að ég setti handklæði yfir hausinn á mér og þóttist vera að svitna massívt. en í raun var ég bara að fela mitt rétta andlit (sem grenjar yfir öllu) fyrir heiminum.
Já þetta var vandræðalegt.

Bestu kveðjur. Emilía.

                Ty pennington að störfum


» 8 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 17